Chat with us, powered by LiveChat Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

  • 50

    MWe

    Uppsett afl

  • 420

    GWh

    Ársframleiðsla raforku

  • 100

    MWth

    Heita vatns framleiðsla

Krýsuvík (1)

Jarðhitasvæðinu í Krýsuvík er skipt niður í fjögur undirsvæði; Austurengjar, Sveifluháls, Sandfell og Trölladyngju. Hugmyndir um jarðhitanýtingu í Krýsuvík eiga sér langa sögu og hafa Hafnfirðingar, sem landeigendur við Sveifluháls og Austurengjar, gefið svæðinu gaum í áratugi, bæði til raforkuvinnslu og hitaveitu sem þjónað gæti nærliggandi þéttbýli. Fjölmargar grunnar borholur fyrirfinnast  í Krýsuvík, sem voru boraðar á síðustu öld en HS Orka hefur enn sem komið er einungis borað djúpar rannsóknarholur í Trölladyngju.  

Hafnarfjarðarbær og HS Orka hafa undirritað samkomulag um rannsóknir og nýtingu auðlindaréttinda í Krýsuvík til vinnslu á heitu vatni, ferksvatni og til raforkuframleiðslu. Markmiðið er að auka afhendingaröryggi á heitu vatni í Hafnarfirði og annars staðar á höfuðborgarsvæðinu ásamt því að mæta vaxandi raforkuþörf í landinu. Samhliða verður unnið að hugmyndum um auðlindagarð með áherslu á útivist, vistvæna ferðaþjónustu og græna atvinnustarfsemi.  

HS Orka fékk úthlutað framkvæmdaleyfi fyrir rannsóknarborunum á Krýsuvíkursvæðinu í ársbyrjun 2024 og er undirbúningur að borunum þegar hafinn. Stefnt er að því að boranir hefjist í byrjun árs 2025. 

HS Orka hefur gert samkomulag við Veitur ohf. um hugsanlegt samstarf um öflun vatns og framleiðslu á heitu vatni fyrir veitukerfi Veitna ohf. Unnið verður að því á árinu 2024 að skapa samstarfsgrundvöll milli félaganna tveggja.  

Heildarmat Orkustofnunar á Krýsuvíkursvæðinu sem jarðhitakerfi er á bilinu 270 MW - 800 MW með miðgildið 445 MW fyrir áætlaða raforkuvinnslugetu.