Framkvæmdir við nýja hjáveitulögn Njarðvíkuræðarinnar gengu vonum framar í nótt og vatn er nú tekið að streyma inn í heitavatnstanka HS Orku á Fitjum.
Lokið var við að sjóða alla lögnina saman um eittleytið í nótt. Þá var hún dregin með einni jarðýtu eftir hraunslóðanum sem liggur þvert yfir hraunið. Tengistykki til endanna voru þegar fullsmíðuð og tilbúin til áfestingar og voru þau komin á sinn stað upp úr klukkan þrjú í nótt.
Þá hófst vinna við að setja heitavatnsframleiðslu í orkuverinu í Svartsengi af stað og hleypa vatni varlega á lögnina. Hópur manna ók meðfram lögninni á meðan á því stóð til að botntæma og lofttæma lögnina og tryggja óheft rennsli. Á sama tíma stýrðu starfsmenn HS Orku í stjórnstöð innstreyminu í lögnina til að forðast loftmyndun og óeðlilega hitaþennslu á lögninni.
Allt hefur gengið að óskum og nú streymir vatn frá orkuverinu inn í heitavatnstanka HS Orku á Fitjum.
Framgangur og skipulag þessarar stóru aðgerðar er einstakt á allan hátt og má þakka styrkri forystu almannavarna ásamt fjölmennum hópi af öflugum fag- og iðnaðarmönnum, verktökum og verkfræðingum. Samstillt átak fjölmargra aðila hefur þannig tryggt að heitt vatn byrjar mögulega að streyma inn í fyrstu húsin á Suðurnesjum í dag.