Chat with us, powered by LiveChat Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

Tölvuskjáir að gjöf í þakklætisskyni

Viðar Arason, öryggisfulltrúi HS Orku, heimsótti vettvangsstjórnina í vetur og afhenti skjáina þeim Boga Adolfssyni, formanni sveitarinnar, og Steinari Þór Kristinssyni, aðgerðastjórnanda.

C46a896bd409e373c2d41b05dcdf49f80ac4e9a0

Það er nóg um að vera í vettvangsstjórn Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar í Grindavík þessa dagana en þaðan er aðgerðum á vettvangi eldsumbrotanna við Litla-Hrút stýrt. Reynslan af síðustu tveimur gosum vegur þungt en einnig ríður á að tækjabúnaður sé sem bestur.

Fyrr á þessu ári fékk vettvangsstjórnin í Grindavík tvo vandaða tölvuskjái að gjöf frá HS Orku í þakklætisskyni fyrir lán á fjórgasmælum, sem fyrirtækið átti ekki en þurfti snögglega á að halda skömmu fyrir jól í fyrra. Þá kom óvænt upp brennisteinsgasmengun við uppsetningu í nýja orkuverinu á Reykjanesi og var brýnt að bregðast hratt og vel við til að tryggja öryggi starfsmanna sem best. Við eftirgrennslan kom í ljós að Björgunarsveitin Þorbjörn átti slíka fjórgasmæla og var auðsótt mál að fá þá lánaða vegna atviksins.

Viðar Arason, öryggisfulltrúi HS Orku, heimsótti vettvangsstjórnina í vetur og afhenti skjáina þeim Boga Adolfssyni, formanni sveitarinnar, og Steinari Þór Kristinssyni, aðgerðastjórnanda, og voru meðfylgjandi myndir teknar af því tilefni.

HS Orka hefur nú fjárfest í eigin fjórgasmælum, sem eru þráðlausir og handhægir mælar, og eru þeir ávallt til taks og notaðir þegar þörf krefur. Hafa þeir einmitt verið nýttir í yfirstandandi eldsumbrotum til að fylgjast með losun gastegunda í andrúmsloftinu í Svartsengi til viðbótar mælistöð sem þar er staðsett. Atvikið fyrir jólin í fyrra sýndi hins vegar glöggt gagnsemi þess að eiga góða granna að þegar óvæntar aðstæður koma upp.