Elma markar tímamót í orkuviðskiptum á Íslandi en markmið Elmu er að auka orkunýtni og styrkja þannig orkuöryggi þjóðarinnar. Elma er dótturfyrirtæki Landsnets en HS Orka er meðal þeirra fyrirtækja sem tók þátt í fyrsta útboði Elmu.
Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs HS Orku, fagnar þessum tímamótum: „Við hjá HS Orku erum afar ánægð með hvernig til tókst með fyrsta útboð Elmu og hefur HS Orka stutt Elmu í hvítvetna við að koma markaðnum af stað. Við teljum mikilvægt að starfræktur sé að minnsta kosti einn næsta-dags markaður hér á landi þar sem allir aðilar á íslenska raforkumarkaðnum geta átt rafræn viðskipti.”
Katrín Olga Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Elmu segir verkefnið hafa tekið tvö ár í undirbúningi: „Allt hófst með ákvörðun um val á markaðsformi og í framhaldi val á rafrænu viðskiptakerfi sem knýr markaðinn. Þá fylgdi að setja saman skilmála, eða svo kallaða Reglubók, sem rammar inn markaðinn og viðskiptin. Að lokum var lausnin innleidd, kerfið kynnt fyrir þátttakendum og markaðurinn formlega opnaður á miðvikudaginn var.
Katrín Olga segir jafnframt að með markaði Elmu aukist orkunýting sem styrkir orkuöryggið. „Viðskiptaskilmálar eru skýrir með áherslu á fyrirsjáanleika og jafnræði sem skapar traust á markaðinum. Skýrt verðmerki er góður grundvöllur langtímasamninga, sem eru nauðsynlegir í öllum orkukerfum heimsins. Verðmerkið styður einnig við öryggi kerfisins og án Elmu markaðarins eykst álagið á jöfnunarorkumarkaðinn, sem er neyðarmarkaður eingöngu ætlaður til að jafna út kerfið. Verðmerkið er líka drifkraftur nýsköpunar, hvort sem er í nýjum orkugjöfum eins og vindi og sól, eða í framtíðar þróunarverkefnum eins og rafhlöðugeymslum, vetnisframleiðslu, glatvarmanýtingu svo dæmi séu tekin.“
Að sögn Katrínar Olgu skiluðu fyrstu viðskiptin skýru verðmerki og viðskipti áttu sér stað allan sólarhringinn. Niðurstöður eru aðgengilegar á nýrri heimasíðu Elmu, elma.is, þar sem einnig er að finna ýmsar upplýsingar um markaðinn og svör við algengum spurningum.