HS Veitur hafa gefið út leiðbeiningar til viðskiptavina fyrirtækisins sem innihalda ýmsar gagnlegar ábendingar vegna hugsanlegra náttúruhamfara. Leiðbeiningarnar eru ítarlegar og svara fjölmörgum spurningum sem brunnið hafa á íbúum á Suðurnesjum frá því að núgildandi óvissustigi almannavarna var lýst yfir.
Leiðbeiningarnar má m.a. finna á vef HS Veitna undir „Ábendingar vegna hugsanlegra náttúruhamfara.“