Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku, undirritaði í morgun leigusamning til sjö ára um skrifstofuhúsnæði KSK Eigna í Krossmóa 4a í Reykjanesbæ. Þar munu 12-15 starfsmenn HS Orku verða staðsettir að staðaldri en aðrar starfsstöðvar fyrirtækisins verða eftir sem áður í Svartsengi, Reykjanesvirkjun og Turninum í Kópavogi. Um þriðjungur af 90 manna starfsliði HS Orku er búsettur á Suðurnesjum og starfa flestir þeirra í orkuverunum tveimur eða í Krossmóa.
Samhliða flutningum í Krossmóa hefur aðstaða fyrirtækisins í Turninum í Kópavogi verið stækkuð til að rúma betur annað starfsfólk sem áður hafði aðsetur í Svartsengi. Flutningarnir koma í kjölfar þess að ekki er talið óhætt að flytja alla starfsemi fyrirtækisins í bráð í höfuðstöðvar þess í Svartsengi eftir umbrot síðustu fjögurra mánaða.
Vinnustaður á hrakhólum
Starfsemin í Krossmóa hafði áður fast aðsetur í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Svartsengi en jarðhræringar og eldsumbrot síðustu mánaða valda því að óvíst er hvort og þá hvenær hægt verður að snúa þangað á nýjan leik. Í dag er lágmarksmannskapur þar við störf, einkum við rekstur orkuversins, en fyrir náttúruhamfarirnar í nóvember höfðu nær allir 90 starfsmenn HS Orku starfsaðstöðu í Svartsengi.
Skrifstofurnar nýju eru á annari hæð í Krossmóa. Þær eru rúmgóðar og bjartar en þar verða 12 fastar starfsstöðvar auk þess sem nokkur dagborð verða aðgengileg fyrir annað starfsfólk fyrirtækisins. Einnig er í húsnæðinu góð aðstaða til fundahalda.
Hornsteinn í héraði
Gaman er að geta þess að HS Orka hefur nú komið sér fyrir á svipuðum slóðum þar sem samningar voru gerðir við landeigendur á frægum hitafundi fyrir rétt um 50 árum. Sá fundur lagði grunninn að Hitaveitu Suðurnesja en fundurinn stóð langt fram eftir nóttu og var einmitt haldinn steinsnar frá Krossmóa, í Iðnskóla Suðurnesja þar sem Fjölbrautarskóli Suðurnesja stendur nú. Hitaveita Suðurnesja var stofnuð 31. desember árið 1974 sem sannkallaður hornsteinn í héraði og fagna fyrirtækin tvö sem byggja á þeim grunni, HS Orka og HS Veitur, því hálfrar aldar afmæli í árslok.
Betrumbætt aðstaða í Turninum
Á mánudag var einnig gengið frá nýjum leigusamningi við Fasteignafélagið Eik en HS Orka hefur tekið á leigu 16. hæðina í Turninum í Kópavogi og hefur þegar flutt starfsemi sína þangað. Fyrirtækið hafði áður til afnota lítinn hluta af 17. hæð Turnsins en á grundvelli þeirrar óvissu sem uppi hefur verið í húsnæðismálum í Svartsengi síðustu fjóra mánuði var sú ákvörðun tekin að flytja þangað alla aðra skrifstofustarfsemi í Turninn en þá sem nú er komin í Krossmóa. Því var þörf á stærra rými og þykir 16. hæðin henta vel en ætla má að að á fimmta tug starfsmanna muni hafa þar vinnuaðstöðu að staðaldri.