Chat with us, powered by LiveChat Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 09-16

HS Orka og atNorth semja á ný um raforku

HS Orka og gagnavers- og ofurtölvufyrirtækið atNorth hafa gert með sér nýjan raforkusölusamning til tæplega fimm ára. Fyrirtækið atNorth og forverar þess hafa átt í raforkuviðskiptum við HS Orku um langt árabil og hefur samstarfið gefist vel.

Img 8930
Eyjólfur Magnús Kristinsson, forstjóri atNorth og Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku.

HS Orka og gagnavers- og ofurtölvufyrirtækið atNorth hafa gert með sér nýjan raforkusölusamning til tæplega fimm ára. Fyrirtækið atNorth og forverar þess hafa átt í raforkuviðskiptum við HS Orku um langt árabil og hefur samstarfið gefist vel. Samningurinn kveður á um kaup á tæplega 20 MW af raforku á ári á samningstímanum.

Gagnaversiðnaður á Íslandi er orðinn mjög öflugur. Hér á landi rekur atNorth stórt gagnaver á Fitjum í Reykjanesbæ auk gagnavera í Hafnarfirði og á Akureyri. Þá starfrækir atNorth fjögur önnur gagnaver á Norðurlöndunum auk þess að vera með í smíðum þrjú til viðbótar, tvö í Finnlandi og eitt í Danmörku.

Eftirspurn eftir aðstöðu fyrir þunga tölvuvinnslu hefur aukist gríðarlega síðustu ár og styður raforkusölusamningur fyrirtækjanna við sterka stöðu atNorth á þeim markaði.

Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku, fagnar áframhaldandi samstarfi við atNorth. „Frá upphafi höfum við stutt vel við gagnaversiðnaðinn á Íslandi og átt í góðu sambandi við fyrirtæki á þeim markaði. Gagnaver nýta raforku sína almennt mjög jafnt yfir árið en geta einnig stýrt orkunotkun sinni og lagað sig að aðstæðum hverju sinni, sem samræmist vel raforkuframleiðslu okkar,“ segir Tómas Már.

Eyjólfur Magnús Kristinsson, forstjóri atNorth,  segir að allt frá því að fyrirtækið hóf rekstur hafi samstarf þess við HS Orku verið farsælt. „Við fögnum áframhaldandi samstarfi. Alþjóðlega er mikill áhugi á að færa þunga gagnavinnslu til norðlægra slóða þar sem eru hentugar aðstæður fyrir rekstur gagnavera og endurnýjanleg orka. Þessi orka mun fara í að þjóna alþjóðlegum fyrirtækjum, svo sem á sviði gervigreindar og flókinna líkanaútreikninga,“ segir Eyjólfur Magnús.