Chat with us, powered by LiveChat Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 09-16

HS Orka lýkur umfangsmikilli endurfjármögnun á krefjandi tímum

HS Orka hefur lokið við að endurfjármagna skuldir félagsins og tryggja lánalínur fyrir áframhaldandi uppbyggingu hér á landi. Fjármögnunin nær til yfirstandandi stækkunar og endurbóta orkuversins í Svartsengi og er mikilvægt skref í átt að metnaðarfullum áformum um frekari vöxt félagsins í jarðvarma og vatnsafli, sem byggja á orkukostum í nýtingarflokki rammaáætlunar.

Hsorka Tomas BK212636
Tómas Már Sigurðsson, forstjóri.
HS Orka

HS Orka hefur lokið við að endurfjármagna skuldir félagsins og tryggja lánalínur fyrir áframhaldandi uppbyggingu hér á landi. Fjármögnunin nær til yfirstandandi stækkunar og endurbóta orkuversins í Svartsengi og er mikilvægt skref í átt að metnaðarfullum áformum um frekari vöxt félagsins í jarðvarma og vatnsafli, sem byggja á orkukostum í nýtingarflokki rammaáætlunar. Lánsfjárhæðin nemur að jafnvirði um 290 milljónum dollara eða um fjörutíu milljörðum íslenskra króna og er veitt af íslenskum og alþjóðlegum bönkum og sjóðum.

Undirstrikar styrk félagsins og trú á vaxtaráform

Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku, fagnar þessum mikilvæga áfanga í rekstri félagsins: „Við erum afar sátt við það að hafa lokið svo umfangsmikilli endurfjármögnun á sama tíma og við höfum þurft að mæta fjölbreyttum áskorunum í rekstri vegna jarðhræringa og eldsumbrota á Reykjanesskaganum síðustu misseri. Þetta undirstrikar styrk félagsins og trú jafnt innlendra sem erlendra lánveitenda á vaxtaráform okkar til framtíðar.

Það er jafnframt ánægjulegt að í hópi lánveitenda eru nýir aðilar en félagið gaf út skuldabréf á USPP (US Private Placement) markaðnum. Við erum eitt fyrsta einkarekna félagið hér á landi til að gefa út á þeim markaði og erum við stolt af því.“

HS Orka leggur lóð á vogarskálar orkuskipta

Tómas bendir ennfremur á að endurfjármögnunin fellur undir grænan fjármögnunarramma félagsins og styður þannig við langtímamarkmið félagsins í rekstri. „Við höldum áfram stækkun og endurbótum orkuversins í Svartsengi og stefnum að því að ljúka framkvæmdinni í árslok 2025 en hún mun, ásamt öðrum verkefnum sem eru framundan hjá okkur, leggja lóð á vogarskálar orkuskipta á Íslandi og mæta vaxandi eftirspurn eftir raforku hér á landi.“

Ráðgjafar HS Orku við endurfjármögnunina voru RBC Capital Markets (sérfræðiráðgjöf í fjármálum og sjálfbærni) en lögfræðiráðgjöf veittu Latham & Watkins ásamt Juris. Lánveitendur nutu ráðgjafar frá White & Case.

HS Orka fagnar hálfrar aldar starfsafmæli í ár

HS Orka byggir á traustum grunni Hitaveitu Suðurnesja sem var var stofnuð í árslok 1974 og fagnar   félagið því 50 ára starfsafmæli á árinu. Félagið hefur frá upphafi verið leiðandi í framleiðslu endurnýjanlegrar orku hér á landi og er þriðji stærsti raforkuframleiðandi á Íslandi. Eigendur eru til helminga Jarðvarmi, félag í eigu 14 íslenskra lífeyrissjóða, og breski innviðasjóðurinn Ancala Partners. Nýsköpun hefur ávallt verið hluti af kjarna félagsins sem sést best í Auðlindagarðinum, þar sem lögð er áhersla á fullnýtingu auðlindastrauma frá jarðvarmavirkjunum. HS Orka á og rekur tvær jarðvarmavirkjanir á Reykjanesi ásamt tveimur vatnsaflsvirkjunum, annars vegar Brúarvirkjun í Biskupstungum og hins vegar Fjarðarárvirkjanir í gegnum dótturfélagið Íslensk Orkuvirkjun Seyðisfirði.