Rekstur HS Orku gekk vel á árinu 2023 og var afkoma góð. Tómas Már Sigurðsson, forstjóri, er stoltur af niðurstöðu ársuppgjörsins en HS Orka sýndi styrk sinn svo um munar á árinu þrátt fyrir aðsteðjandi náttúruvá.
„Styrkurinn speglast annars vegar í kaupum á Fjarðarárvirkjunum í Seyðisfirði síðsumars og umfangsmikilli uppbyggingu í Svartsengi og hins vegar í skjótum viðbrögðum og aðlögunarhæfni félagsins í kjölfar jarðhræringanna við Sundhnúksgíg. Upp úr stendur gott samstarf við almannavarnir og aðra viðbragðsaðila í kjölfar eldsumbrota í Fagradalsfjalli í mars 2021, sem skilaði sér m.a. í skjótri uppbyggingu varna fyrir byggð í Grindavík og samfélagslega mikilvæga innviði í Svartsengi.“
Sterk fjárhagsstaða
Rekstrartekjur ársins námu um 13 milljörðum króna og hækka um 22% á milli ára. Munar þar mestu um aukna raforkusölu á hinum almenna markaði með meiri eigin framleiðslu og aukinni sölu upprunaábyrgða. Fjárhagsstaða félagsins er sterk og nam eigið fé 31,5 milljörðum í árslok og eiginfjárhlutfall er 42%.
Tómas Már undirstrikar að frá upphafi jarðhræringanna hefur orkuvinnsla félagsins á Reykjanesi verið órofin en frá reikningsskiladegi hafi fleiri áskoranir blasað við. „Fjórða eldgosið við Sundhnúksgíg stendur yfir, hraun rann yfir mikilvægar stofnæðar og flytja hefur þurft stóran hluta af starfsemi félagsins úr Svartsengi. HS Orka stendur engu að síður á styrkum stoðum sem gera félaginu kleift að takast á við slíkar áskoranir samhliða því að vinna áfram að metnaðarfullum þróunarverkefnum í orkuvinnslu og sjálfbærni.“
Umfangsmiklar fjárfestingar í innviðum
Alls fjárfesti HS Orka fyrir tæpa 11 milljarða króna á árinu, annars vegar til frekari innviðauppbyggingar á Reykjanesi og hins vegar með kaupum á Íslenskri Orkuvirkjun Seyðisfirði ehf. (ÍOVS) en félagið á og rekur tvær vatnsaflsvirkjanir í Fjarðará í Seyðisfirði, Bjólfsvirkjun og Gúlsvirkjun, sem saman kallast Fjarðarárvirkjanir. Kaupin á ÍOVS voru fjármögnuð að stærstum hluta með hlutafjárhækkun beggja hluthafa.
Framkvæmdir við stækkun og endurbætur orkuversins í Svartsengi hófust af fullum krafti á árinu en fyrsta skóflustungan að þessu stóra innviðaverkefni var tekin í árslok 2022. Heildarkostnaður við framkvæmdina er áætlaður ríflega 12 milljarðar króna.
Eldsumbrot og jarðhræringar á síðari hluta árs 2023 höfðu óveruleg áhrif á afkomu og orkuvinnslu HS Orku á árinu. Framkvæmdir við stækkun og endurbætur í Svartsengi lágu niðri um tíma vegna jarðhræringa en vel hefur gengið að vinna upp seinkun sem af því hlaust.
Hagfelldar lykiltölur
Rekstrarhagnaður (EBITDA) var 6.037 milljónir króna árið 2023 samanborið við 4.591 milljón króna árið áður og hækkar því um 32% á milli ára. Hagnaður fyrir skatta nam 1.784 milljónum króna á árinu 2023, samanborið við hagnað fyrir skatta að fjárhæð 87 milljónir árið 2022. Fjármagnsliðir setja verulegt mark á liðinn í samanburði á milli ára en í stórum dráttum skýrist breytingin annars vegar af hagfelldri gengisþróun íslensku krónunnar á árinu 2023, gengishagnaður nam 1.019 milljónum króna samanborið við gengistap 1.807 milljónum króna árið áður og hins vegar af auknum vaxtagjöldum samhliða hærra vaxtastigi og fjárfestingum.
Fastafjármunir jukust um 7,3 milljarða á milli ára sem skýrist aðallega af nýfjárfestingum vegna stækkunar orkuversins í Svartsengi og kaupum á vatnsaflsvirkjunum í Fjarðará. Veltufjármunir drógust saman um 750 milljónir sem skýrist að mestu af lækkun á handbæru fé vegna framkvæmdanna í Svartsengi.
Vaxtaberandi skuldir jukust um 3,7 milljarða á milli ára. Hækkunin skýrist að mestu af stækkun og endurnýjun orkuversins í Svartsengi.
Ýmsar viðurkenningar
HS Orka er stolt af því að hafa á rekstrarárinu hlotið viðurkenningarnar Framúrskarandi fyrirtæki 2023 og Fyrirmyndarfyrirtæki 2023 ásamt viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2023.
Helstu niðurstöður úr ársuppgjöri:
- Rekstrarhagnaður (EBITDA) var 6.036 milljónir króna árið 2023 samanborið við 4.591 milljón árið áður og hækkar því um 31% á milli ára.
- Hagnaður fyrir skatta var 1.784 milljónir króna samanborið við 87 milljónir króna á árinu 2022.
- Rekstrartekjur námu 13 milljörðum og hækka um 2,4 milljarða (22%) á milli ára.
- Heildareignir félagsins námu 76 milljörðum í lok árs og efnahagsreikningur félagsins stækkar um 9% milli ára.
- Fjárhagsstaða félagsins er sterk og nam eigið fé 31,5 milljörðum. Eiginfjárhlutfall er 42% en 49% að meðtöldu víkjandi láni frá hluthöfum. Í ljósi sterkrar fjárhagsstöðu var hlutafé lækkað sem nam fjórum milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi.
Sjálfbærniskýrsla HS Orku 2023
Samhliða birtingu ársreiknings gefur HS Orka út sjálfbærniskýrslu fyrir árið og er hún aðgengileg hér á vef HS Orku. Í skýrslunni koma fram ítarlegar upplýsingar um starfsemi fyrirtækisins og áhrif hennar á umhverfi og samfélag. Stigin voru skref í aðlögun að nýrri Evróputilskipun fyrir sjálfbærniupplýsingagjöf (CSRD) þar sem nýjum ESRS staðli fyrir loftslagmál er fylgt í hvívetna, auk þess sem stærstur hluti skýrslunnar er nú staðfestur af ytri aðila (KPMG ehf.)
Að gefnu tilefni er í skýrslunni m.a. yfirlit yfir viðbrögð og varnir HS Orku vegna aðsteðjandi náttúruvár og farið yfir samstarf við aðra hag- og viðbragsaðila í þeim efnum. Í skýrslunni er yfirlit yfir helstu mælikvarða félagsins sem snúa að sjálfbærnimálum, farið yfir aðgerðir og áskoranir félagsins í loftslagsmálum, ljósi varpað á verkefni á sviði auðlindastýringar, öryggis- og mannauðsmála, og gerð grein fyrir stöðu félagsins gagnvart flokkunarreglugerð Evrópusambandsins, svo fátt eitt sé nefnt.
Stjórn HS Orku
Á aðalfundi þann 24. apríl s.l. voru kjörin í stjórn þau Adrian Pike, stjórnarformaður, Bjarni Þórður Bjarnason,varaformaður, Heike Bergmann, meðstjórnandi og Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir, meðstjórnandi. Til vara voru kosin Gunnar Jóhannsson, Margrét Sveinsdóttir, Olli Mononen og Mei Niu.
Um HS Orku
HS Orka var stofnað í árslok 1974 undir merkjum Hitaveitu Suðurnesja og fagnar því 50 ára starfsafmæli á árinu. Fyrirtækið hefur frá upphafi verið leiðandi í framleiðslu endurnýjanlegrar orku hér á landi. HS Orka er þriðji stærsti raforkuframleiðandi á Íslandi en eigendur eru til helminga Jarðvarmi, félag í eigu 14 íslenskra lífeyrissjóða, og breski innviðasjóðurinn Ancala Partners. Nýsköpun hefur ávallt verið hluti af kjarna fyrirtækisins sem sést best á Auðlindagarðinum, þar sem lögð er áhersla á fullnýtingu auðlindastrauma frá jarðvarmavirkjunum. HS Orka á og rekur tvær jarðvarmavirkjanir á Reykjanesi ásamt tveimur vatnsaflsvirkjunum, annars vegar Brúarvirkjun í Biskupstungum og hins vegar Fjarðarárvirkjanir í gegnum dótturfyrirtækið Íslensk Orkuvirkjun Seyðisfirði.