Alls hlutu 28 samfélagsverkefni víða um land styrki úr Samfélagssjóði HS Orku á þessu ári en síðari úthlutun ársins fór fram í nóvember. Heildarupphæð styrkja nam tíu milljónum króna og hefur hún aldrei verið hærri.
Samfélagsjóðurinn var settur á laggirnar í upphafi árs 2023 og er honum ætlað að styðja við verkefni einstaklinga eða hópa sem hafa jákvæð áhrif á íslenskt samfélag, lífsgæði og mannlíf. Tekið er á móti umsóknum um styrki frá öllum landshlutum en sérstök áhersla er lögð á að styðja við verkefni í nágrannabyggðum starfsstöðva fyrirtækisins. Við val á verkefnum er meðal annars litið til þeirra heimsmarkmiða um sjálfbæra þróun sem HS Orka hefur innleitt.
Frú Ragnheiður, leiklist, ljósmyndir og söngvaskáld
Meðal verkefna sem hljóta styrki að þessu sinni er námsverkefnið Kvikuvikan á vegum Reykjanes UNESCO Geopark, Frú Ragnheiður á vegum Rauða Krossins á Suðurnesjum, menningarverkefnið „Söngvaskáld á Suðurnesjum fyrir eldri borgara“, endurnýjun pallabúnaðar hjá Leikfélagi Keflavíkur, Útiljósmyndasýningin „Reykjanes vaknar“ í Grindavík auk verkefnisins „Uppskera“ á vegum GETA hjálparsamtaka í Hafnarfirði.
Sérstakir styrkir til björgunarsveita
Í vorúthlutun sjóðsins fengu allar fimm björgunarsveitirnar á Suðurnesjum styrki til stuðnings því frábæra starfi sem sveitirnar hafa unnið á krefjandi tímum jarðhræringa og eldsumbrota. Í síðari úthlutun sjóðsins á árinu var ákveðið að halda áfram með þessar sérstöku styrkveitingar til björgunarsveita. Fimm styrkir til viðbótar fara nú til verkefna björgunarsveita í öðrum landshlutum þar sem HS Orka er með starfsemi eða kemur að þróun verkefna. Úthlutað er úr Samfélagssjóðnum tvisvar sinnum á ári og verður næsta úthlutun í maí 2025. Hægt er að nálgast allar upplýsingar um sjóðinn á vefsíðu HS Orku.
Verkefni sem hlutu styrk úr Samfélagssjóði HS Orku í nóvember:
- Straumvatnsbjörgunarhópur – Hjálparsveitin Tintron í Grímsnes- og Grafningshreppi
- Vettvangshjálparhópur – Björgunarsveitin Eyvindur á Flúðum
- Búnaður fyrir björgunarskip – Björgunarbátasjóður Suðurnesja
- Búnaðaruppbygging – Björgunarsveitin Ísólfur á Seyðisfirði
- Búnaðaruppbygging – Björgunarsveitin Strandasól í Árneshreppi
- Njarðvík í nýju umhverfi – Körfuknattleiksdeild UMFN
- Sjálfbærnisetrið í Krýsuvík – Veraldarvinir
- Frú Ragnheiður á Suðurnesjum – Rauði krossinn
- Reykjanes vaknar – Slysavarnarfélagið Landsbjörg
- Söngleikjatónleikar fyrir pallabúnað – Leikfélag Keflavíkur
- Virkni og inngilding flóttafólks og hælisleitenda – Knattspyrnudeild Keflavíkur
- Uppskera/Growing Roots – GETA hjálparsamtök
- Kynfræðsla um allt land – Ástráður, kynfræðslufélag læknanema
- Kvikuvikan – Reykjanes UNESCO Global Geopark
- Söngvaskáld á Suðurnesjum fyrir eldri borgara – Dagný Maggýardóttir