
Kristinn Harðarson
Framkvæmdastjóri framleiðslusviðs
Kristinn Harðarson er með meistaragráðu í rekstrarverkfræði frá Tækniháskóla Danmerkur (DTU) ásamt meistaragráðu í viðskiptafræði (MBA) frá Háskóla Íslands. Kristinn kom til starfa sem framkvæmdastjóri framleiðslusviðs HS Orku í ársbyrjun 2021 en starfaði áður við stjórnun virkjanareksturs hjá ON Power. Þar áður starfaði hann í fjórtán ár hjá Alcoa Fjarðaráli, meðal annars sem framkvæmdastjóri álframleiðslu og framkvæmdastjóri fjárfestinga og framleiðsluþróunar. Einnig tók Kristinn þátt í umbreytingu viðskiptaferla í höfuðstöðvum Alcoa Corporation í Pittsburgh í Bandaríkjunum.